2.12.06

viðskiptahugmynd nr. 2

asvs viðrar hugmynd:

ég er með brilliant viðskiptahugmynd sem þið hjálpið mér að útfæra. útgáfa veglegrar bókar.

innihald bókarinnar yrði dagatal fyrir alla 21. öldina. gæti t.d. flett upp hvort Atli minn verður sjötugur á mánudegi eða þriðjudegi... skilst reyndar að þetta sé allt hægt að nálgast á Netinu en hef ekki skoðað það.

aðalbrellan væri hinsvegar að fylla dagatalið af upplognum staðreyndum um hvað gerðist hinn eða þennan daginn. dæmi:
11. apríl 2014, innrás Færeyinga í Ísland lauk með því að Gísli Marteinn, forsætisráðherra Íslands, tilkynnti algjöra uppgjöf Íslendinga.
eða:
9. júní 2032, Davíð Oddson lést.
eða:
29. nóvember 2009: Arnar Tryggvason fasteignasali keypti Icelandair og fyrirskipaði að reykingar yrðu leyfðar í öllum vélum félagsins. bakhjarl Arnars var Menningarsamsteypan Populus tremula group.

5 ummæli:

populuspanodil sagði...

mögnuð hugmynd. gæti orðið dáldið tímafrek. yrðu þetta valdar dagsetningar eða þyrfti setja inn merkisfregnir á hvern einasta dag þessarar aldar?

populuspanodil sagði...

hver var annars fyrri viðskiptahugmyndin?

Nafnlaus sagði...

minnir að það hafi verið þetta með afvötnunarstöðina í Papey. þessi er auðveldari.

yrðu fjandi margir viðburðir sem þyrfti að semja með því að taka alla daga aldarinnar...

Nafnlaus sagði...

bágt á ég með að trúa frændum mínum færeyingunum til að ráðast inn á ísalandið á afmælisdegi mínum akkúrat sem við reisum mér styttu í afvötnunarstöðinni í Papey fyrir síendurtekin janúarbindindi

hins vegar ætti svona bók að vera pottþéttur sökksess rétt einsog Kviðmágatal Íslendinga, sem stuðmenn eru með á teikniborðinu

Nafnlaus sagði...

heheheheh. kviðmágatal er brilliant!