26.1.14
Guðmundur Ármann sýnir í Populus tremula
Hinn síungi listamaður Guðmundur Ármann opnaði þessa líka flottu sýningu í Populus tremula laugardaginn 25.janúar 2014. Sýningin bar yfirskriftina Nærlönd ( sjá: http://poptrem.blogspot.com/2014/01/gumundur-armann-synir.html). Fjöldi fólks kom að sjálfsögðu á opnun þar á meðal syngjandi karlakór. Þetta var gaman og Populus þakkar fyrir sig.
19.1.14
Mannfólkið breytist í slím
Árið 2014 byrjaði með látum í Populus tremula. Ljósmyndarinn knái Daníel Starrason og félagar hans héldu bæði myndlistarsýningu og tónleika 3.-4. janúar. Á föstudagskvöldinu komu fram Þorsteinn Kári, Á Geigsgötum, Buxnaskjónar og Helgi og Hljóðfæraleikararnir. Á laugardagskvöldið komu fram Impetus, Concubine, Aska og Hindurvættir.
Sýnendur voru Daníel Starrason, Karólína Baldvinsdóttir, Jón Arnar Kristjánsson og Úlfur Bragi Einarsson.
Myndirnar flestar tók Daníel. Populus þakkar fyrir.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)