28.2.09

Guðmundur Ármann sýnir í Populus Tremula 28.2.









Guðmundur Ármann setti upp stórgóða sýningu á vatnslitamyndum í Populus Tremula ( reyndar fyrstu sýningu sína á vatnslitamyndum ) laugardaginn 28.2. 009.
Fjölmargir lögðu leið sína í kjallarahöllina og ekki spillti hvítvínið, sem Guðmundur og kona hans flytja sjálf inn, fyrir ánægju gesta.

24.2.09

Steinn Steinarr skáld. Ég kvaðst á við fjandann.











Laugardagskvöldið 21.2.009 var haldin dagskrá til heiðurs langafa íslenskrar nútímaljóðagerðar öðlingnum Aðalsteini Kristmundssyni.
Steinn Steinarr var hylltur með upplestri úr ljóðum hans útafleggingum af ditto og söng.
Gott mál.