Rokkhljómsveitin Myrká hét fína tónleika í Populus tremula laugardagskvöldið 23.1.2010, til að fagna úkomu plötu sinnar sem ber nafnið 13. Djákninn var á svæðinu og stóð fyrir rafmagnstruflunum, enda var Garún annarstaðar.
24.1.10
17.1.10
Þórgnýr Dýrfjörð sýnir í Populus Tremula
Fyrsta opnunin í Populus Tremula á árinu 2010 var laugardainn 16.1. Þá sýndi menningarmaðurinn góðkunni Þórgnýr Dýrfjörð ljósmyndir. Var þetta hans fyrsta einkasýning. Það var fjölmennt og góðmennt og tónlistarmenn stigu á stokk að hætti hússins. Gaman og gott.
2.1.10
Áramótauppgjör
Hið fimmta áramótauppgjör Populus Tremula samsteypunnar ( sjötta ef áramótafagnaðurinn 1.1.2005 er talinn með ), var haldið í höfuðstöðvunum 30.12. 2009. Þar var að venju mikið sungið í míkrófóna og gígjur, slaghörpur og trommur slegnar markvisst.
Þar komu fram Guðmundur Egill og Kristján Pétur :
Einnig Ingi, Arnar bróðir hans, Þura kona Arnars og Bárður frændi þeirra.
Og Konni Bartsch mætti með heila hljómsveit :
Eftir hlé söng Jóhann Eiðsson með aðstoð Arnars og Bárðar :
Að lokum tróð upp ný hljómsveit sem kom í ljós að var “Veghefill á Víkurskarði” ( VáV ).
Semsagt gott !