8.4.12

Páskasýning Birgis Sigurðssonar














Þriðju páskana í röð setur Birgir Sigurðsson upp ljósverk í Populus Tremula. Laugardaginn 7.4.2012 opnaði hann aðgang að innsetningunni "Jörð án hreyfingar". Jörðin er græn og falleg að vonum.

6.4.12

Skrokkabandið í Populus Tremula








Á skírdagskvöld fimmtudaginn 5.4. 2012 steig Hið Aðallega Skrokkaband ( Haraldur Davíðsson og Kristján Pétur Sigurðsson ) á svið í Populus Tremula og spiluðu og sungu eigin lög, en það eru einmitt 25 ár síðan þeir félagar hófu samstarf, en síðustu fimmtán árin hafa tónleikar verið örfáir, en gömlu lögin standa fyrir sínu.

2.4.12

Petra Korte í Populus Tremula

Þýska myndlistakonan Petra Korte opnaði stórskemmtilega sýningu í Populus laugardaginn 31.mars. Petra vinnur á skemmtilegan hátt með saltmyndanir og liti og útkoman verður oft æði óvænt. Sýninguna nefnir hún Ice Books og sjón er sögu ríkari.