Laugardaginn 18.12.2010 opnaði Georg Óskar Manúelsson stórskemmtilega sýningu í Populus Tremula. Fjörlegar teikningar og málverk og pírumpár á striga, sór sig svolítið í ætt við graffíti-list. Hressandi í skammdeginu. - Sömu helgi var að sjálfsögðu jólabazar Beate og Helga á sama stað. - Gaman í gilinu.
19.12.10
15.12.10
Beate og Helgabazar
Nú er desember, mánuður Bazars Beate og Helga frá Kristnesi í Populus Tremula. Allar helgar í mánuðinum og síðustu dagana fyrir jól eru þau ásamt fleirum með sinn fína varning til sölu og sýnis. Sannarlega upplyfting í skammdeginu. Laugardaginn 11.12.2010 voru þau heillahjónin með tískusýningu á sinni flottu hönnun og saumaskap, það var og fyrsti í jólatrjásölu og bara gaman að vera á Populussvæðinu.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)