24.12.06

Gleðileg jól!

Jæja félagar!
Nú er dasið eftir sextándann orðið of langt og kominn tími á að setja inn nýja færslu. Þannig að:

Sendi Populus Tremula mönnum öllum nær og fjær, fyrrverandi og núverandi, ásamt og spúsum þeirra, niðjum og öðrum ættingjum hugheilar og hjartkærar jólakveðjur. Óska svo allri hersingunni velfarnaðar á komandi árum, og þakka samverustundirnar á því liðna.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sömuleiðis!

hefur verið prýðilegt ár og ekki ástæða til annars en líta vongóðir til næsta. fyrst er náttúrulega að koma keivgigginu frá, geri fastlega ráð fyrir góðri stund það kvöldið.

njótið hátíðanna félagar og allt ykkar lið!

Nafnlaus sagði...

gúddí
tek undir með heillaóskum populuspanodils sjálfs

Nafnlaus sagði...

Já uuu einmitt. Hmm. Þetta var semsagt ég sem setti inn færsluna. Svona getur verið erfitt að muna grundvallaratriðin þegar maður er þreyttur. Sjáumst á eftir.