8.10.06

Venjubundin Aðalfundarstörf



Það var vissulega fjör á aðalfundi PopulusTremulaSamsteypunnar í gærkvöld, menn urðu hvorki sárir né áberandi móðir hlátrasköll tíð og kom fram tillaga um að selja inn á Aðalfundi því skemmtiatriðin væru frábær. Ég félagi KP tók þessar myndir af nokkrum félögum við venjubundin Aðalfundarstörf.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

glæsilegt heimildasafn félagi KP!
var samt viss um að félagi Helmets myndi tæma úr fleygnum... var ákveðinn antíklímax þar á ferð – en þroskamerki sem kom á óvart hjá öðru eins gáfumenni og hann nú er.

Nafnlaus sagði...

Ja - ég er ekki frá því að timbraðastur manna sé undirritaður eða ofangreindur má víst segja hér. Þessi pæling að drekka í gegnum aðra er ódýr og góð lausn - að maður tali ekki um að muna hvert augnablik sem gerst hafi í gær... bíddu við þetta var jú í gær.
En kæru félagar og annað fólk sem slæddist inn, kæra þökk fyrir eitthvað skemmtilegasta menningarkveld sem ég hef upplifað.
Magnaðar myndsmíðar hjá KP og skemmtilegt að hafa hirðljósmyndara tvo frekar en einn.

Munið æfing þriðjudagskveld um 20:03

Nafnlaus sagði...

Ég verð því miður að slá svolítið slöku við á þriðjudaginn, engar líkur eru á að ég verði mættur kl. 20:03 en það má búast við mér fljótlega uppúr 20:05