26.11.06

efnilegur ljósmyndari

félagi asvs spyr:

hef upp á mitt eindæmi boðið hirðljósmyndara Populus tremula, Sigurði Ormi Aðalsteinssyni, að halda ljósmyndasýningu í plássinu á vormánuðum ef hann vill og er tilbúinn. sá tók vel í erindið og er til í slaginn.
væri það ekki helvíti flott að sýna 10 ára gamlan ljósmyndara um svipað leyti og Helga Þorgils Friðjónsson?

gæinn er nefnilega með auga fyrir þessu og með þetta skemmtilega lága sjónarhorn á hlutina (ekki einu sinni mannhæð).
pikkið endilega í mig ef þetta er langt fyrir utan allt velsæmi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er eindreginn stuðningsmaður þess að pilturinn fái tækifæri, það er vegna þess að ég hef séð athyglisverð dæmi þess að hann hefur auga fyrir myndbyggingu, ljósi og sjónarhorni.
Leyfum honum bara að sýna.

Nafnlaus sagði...

heyr heyr

Flott mál - óspillt efni utanaðkomandi álitsgjafa!!!