5.9.10

Jared Betts í Populus Tremula.

Laugardaginn 4.9. 2010 opnaði Kanadamaðurinn Jared Betts stórskemmtilega málverkasýningu í sal Populus Tremula. Jared hefur dvalist í Listamiðstöðinni á Skagaströnd undanfarið sumar og málað þar þær myndir sem hann sýndi í Populus.    Því miður áttu sárafáir leið um gilið í haustblíðunni þennan laugardag ( kanski menningarþreyta eftir Akureyrarvöku helgina áður ), en það var synd því þessi sýning var hressilegur sumarauki. Takk Jared.

Engin ummæli: