Laugardaginn 22.11. frumsýndu félagarnir Þorsteinn Gíslason og Kristján Pétur Sigurðsson margra miðla sýningu sína "Wood you see Wood you listen" við góðar undirtektir í Populus tremula og sást þá í fyrsta sinn til hinnar sexfættu skepnu "Skógarkjaga" sem baulaði mökunarkall sitt og óð skógarreyk. Sýningin var unnin fyrir tilstilli styrks frá menningarráði Eyþings og kunna listamennirnir ráði því bestu þakkir.
Laugardaginn 15.nóvember opnaði Rögnvaldur Gáfaði Bragi Rögnvaldsson stórfína sýningu í Populus tremula undir yfirskriftinni Bara Kassar. Það var sem sumar í miðjum nóvember og gilið iðaði af lífi og skemmtilegheitum.