Laugardaginn fyrir hvítasunnu 22.5.2010 opnaði Samúel Jóhannsson, sá eini og sanni, stórskemmtilega sýningu á akryl- og vatnslitammyndum í Populus Tremula. Það var sól og vor í lofti og lítið um depurð og drunga.
24.5.10
16.5.10
Maja Siska sýnir í Populus Tremula
Laugardaginn 15. maí opnaði Maja Siska flotta sýningu í Populus Tremula. Sýningin bar yfirskriftina RT10 og teygði sig alveg fram á gang. Gaman og takk.
18.4.10
Litla Ljóðahátíðin ; laugardagskvöld
Laugardagskvöldið 17.4. var framhald á Litlu Ljóðahátíðinni í Populus Tremula. Þá lásu upp skáldin, Hermann Stefánsson, Óskar Árni Óskarsson, Bragi Ólafsson og Ingibjörg Haraldsdóttir las ljóð Kristínar Ómarsdóttur, sem forfallaðist.
Takk fyrir. Stórt.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)