1.5.11

Jude Griebel í Populus Tremula

Laugardaginn 30.4. 2011 var opnuð sýning kanadíska listamannsins Jude Griebel á olíumálverkum og teikningum í Populus Tremula. Sýningin bar yfirskriftina Afterlife og listamaðurinn hafði sem sé beðið vini sína að segja frá hvernig þeir sæu fyrir sér að vera eftir dauðann og málað það. Listamaðurinn gat ekki komið á opnunina en sendi verkin frá Kanada og mikill var höfuðverkurinn að ná þeim frá hinni hugumstóru íslensku tollþjónustu. En það leystist og var fyrirhafnarinnar virði því þetta var flott sýning.

27.4.11

Birgir Sigurðsson með páskasýninguna

Á skírdag 21.4.2011 opnaði Birgir Sigurðsson almenningi aðgang að ljósverkinu Lífið vs. Lífið í Populus Tremula. Sýningin lýsti alla páskahátíðina. Ansi flott.

6

10

16

18

- 40 afmæli Kristjáns Péturs

Populusmaðurinn Kristján Pétur Sigurðsson hélt uppá – 40 ára ( miðað við heilt hundrað ) afmæli sitt í Populus Tremula 16.4.2011. Það var etið, drukkið, tjúttað, twistað, sjeikað, rokkað og rúllað á rósum.

Myndavöndull er hérna

13.3.11

Arna Valsdóttir og Billie Holiday

Arna Valsdóttir sýndi vídeóverkið Staðreynd 3 í Populus Tremula helgina 12.-13.mars 2011. Verkið er óður til Billie Holiday ( Lady sings the blues ). Arna tók upp verkið og söng í húsakynnum Populus og er það alveg mögnuð veisla fyrir augu og eyru.

Takk Arna.