19.1.07

Ég er sannur listunnandi...

Ég vil byrja á að bjóða í stærsta verkið sem verður á brunaútsölu Aðalsteins Svans, það stærsta segi ég og skrifa - vil ekki vita hvernig það lítur út, hvort að það hreyfi við mér eða mínum - heldur ætla ég að leggja fram boð í samræður gegn verki þessu og athuga hvort að listkaupi (ég) og listgerandi (M'ain'tSton'd) getum ekki orðið ásáttir um að sá síðarnefndi sé í magni meiri gæði en oft er magn ekki sama og gæði nema að gæði séu í gegn og óháð magni.

Nema að Magni sé

Gwendr (félagi/bróðir)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jess! er um 200x150 sm ef ég man rétt. fínt verk en var ekki að virka stofulegt á sýningargesti á sínum tíma. eru komin út úr geymslunni og til skoðunar í Populus fyrir þá sem hafa lyklavöld.

Nafnlaus sagði...

Ég er líka sannur listunnandi.

En mig langar í eina smáa.
Einhverja sem hæfir bæði fjárráðum mínum og plássleysinu sem umkringir mig og fer undarlegt nokk sífellt stækkandi.

Áttu ekki örugglega til einhverjar á Tiger-prís?

Nafnlaus sagði...

heheheheh... eitthvað nálægt því alla vega, hef enga trú á öðru.