25.5.14

Joris Rademaker í Populus tremula

Hollendingurinn listfljúgandi Joris Rademaker opnaði mjög góða sýningu í Populus tremula laugardaginn 24.5.2014. ( sjá: http://poptrem.blogspot.com/2014/05/joris-rademaker-synir-24-og-25-mai.html )Einsog alltaf var leikurinn leikinn til fulls hjá Joris og jafnvel blindustu þumbarar komast ekki hjá því að sjá hvað honum lætur vel að skapa. Þetta var fjórða sýning Jorisar í Populus tremula og alltaf er jafn gaman, takk.

18.5.14

KJÓLANDI

Á þjóðhátíðardegi norðmanna laugardaginn 17. maí var hátíðarstemming í Populus tremula. Listakonurnar Brynhildur Kristinsdóttir, Dagrún Mátthíasdóttir, Jónborg Sigurðardóttir og Þóra Karlsdóttir opnuðu þá sýninguna Kjólandi. Þetta var sprúðlandi og leifrandi fyrirtakssýning og skemmtileg. Populus tremula þakkar fyrir