10.1.11

Addi40

Populusmaðurinn og hljómborðsleikarinn geðþekki unglingurinn Arnar Tryggvason, hélt upp á afmæli sitt í PopulusTremula 8.-9.1 2011.   Margt stórmenna úr poppinu lét sig ekki vanta. Þarna voru meðal annarra Dolly Parton og Axl Rose, Slash og Björk, Ozzy og Janis, John og Yoko, Bubbi og Amy Winehouse, Eiríkur Fjalar, Cher, James Hetfield ( újeah ), Hvanndalsbræður og Marlyn Monroe kom og söng afmælissönginn einsog hún söng fyrir Kenndy forðum. Þetta var söngur glaumur og gleði.

Miklu fleiri myndir frá gleðskapnum er að finna hér

5.1.11

Áramótauppgjör 30.12.

Í Populus Tremula var hið árlega áramótauppgjör haldið 30.12.         Að þessu sinni var dagskráin fjölbreytt að hætti hússins. Ýmsir meðlimir hins gamla húsbands stigu á svið með með hinum og þessum og eingöngu voru spiluð góð lög ýmist frumsamin eða ekki. Kombó Konna Bartch reið á vaðið, þá Bræðra-og Frændabandið, svo Dúó Kristjáns og Guðmundar og að lokum hefluðu Heflarnir yfir samkomuna.     Semsagt prýðisgott.