4.1.13

Áramótauppgjör

Hið árvissa Áramótuppgjör Populus Tremula var haldið 30.desember 2012. Þetta árið komu fram : Kristján Pétur, Jóhannes Eiðsson og félagar, VÖLVA, Heflarnir og stuðpönksveitin Svefnpurrkur. Þetta var einfaldlega fjör, enda stóð ekkert annað til.

Takk fyrir enn eitt gjöfult Populus Tremulaár.

25.12.12

JólaBazar Helga og Beate

Hinn árlegi jólabazar Kristneshjónanna snjöllu Helga Þórssonar og Beate Stormo hófst 15. desember og náði hámarki á Þorláksmessu. Þar mátti kaupa m.a. jólatré beint frá býli, fatnað, kerti, skartgripi, kókhanska, smíðajárnsgripi og fleira. Allt saman unnið milli mjalta á Kristnesbýlinu. Að venju var þetta litríkt gaman.

Sjáumst að ári.

10.12.12

Rokk og Daníel

Á föstudagskvöldið 7.desember 2012 opnaði Daníel Starrason stórgóða sýningu á ljósmyndum sem hann hefur tekið af tónlistarfólki, bæði stúdíótökur og myndir teknar á tónlistarvettvangi. Í tengslum við sýninguna voru rokkaðir tónleikar í Populus þar sem fram komu hljómsveitirnar Nought, Sejlklubben, Brák og Völva. Það var að sönnu hin dægilegasta skemmtan.

Sýning Daníels var svo opin á venjubundnum opnunartíma Populus um helgina.  Takk fyrir.