Öðlingurinn Sigurður Heiðar Jónsson er fallinn frá. En orðstýr deyr aldregi. Laugardagskvöldið 18.6. 2011 var haldið hið fyrsta minningarkvöld um Papapopulus hinn eina og sanna. Mörg voru atriðin í Populus Tremula þetta kvöld og öll vorum við komin til að hafa gaman að einsog Papa vildi hafa það. Stjarna kvöldsins var tvímælalaust ungur sonarsonur Sigga, sem spilaði bæði Bach á gítarinn og söng og spilaði Metalicu.
Takk bræður og systur.
1 ummæli:
Já þetta var ósköp einfaldlega eins og það átti að vera: Fallegt! Bestu þakkir fyrir. - Þórgnýr
Skrifa ummæli