Laugardaginn 27.september opnaði Guðrún Benedikta Elíasdóttir stórgóða málverkasýningu í Populus tremula. Sýninguna nefndi hún Innri öfl - Ytri öfl ( sjá http://poptrem.blogspot.com/2014/09/gurun-benedikta-synir-27-28-sept.html ). Populus tremula þakkar fyrir þessa fallegu hausthelgi.
Laugardaginn 20.september opnaði Rolf Hannén mjög fallega ljósmyndasýningu í Populus tremula undir yfirskriftinni "Listaverk náttúrunnar". Einsog nafnið gefur til kynna voru þetta myndir úr íslenskri náttúru og Rolf beinir linsunni jafnt að hinu stórbrotna sem hinu smáa og fíngerða.
Gunnar Kr Jónasson ( Gunnar frá Stíl einsog hann er oftlega kallaður í Populus tremula ) opnaði stórgóða sýningu á akrýl og vatnslitamyndum í Populus tremula laugardaginn 30. ágúst. Það var Akureyrarvaka og allt iðaði af lífi og fjöri. Svo gerðu og formin hans Gunnars.