Laugardaginn 12.júlí opnuðu tveir kornungir listamenn þeir Vikar Mar og Elvar Orri sprúðlandi ferska málverkasýningu í Populus tremula undir nafninu Ólíkindi. Þetta eru hugaðir stákar að leggja á listabrautina og við eigum ábyggilega eftir að sjá meira frá þeim. Takk fyrir og til hamingju.
Laugardaginn 5.júlí lásu fjögur skáld úr Ritlistarhópi Kópavogs upp í Populus tremula. Því miður hefðu miklu fleiri komist að en vildu því þetta var skemmtileg dagskrá sem átti skilið að ná til fleiri. Þau sem lásu upp úr kvæðum sínum þennan eftirmiðdag voru Hrafn Andrés Harðarson, Sigríður Helga Sverrisdóttir, Eyvindur P. Eiríksson og Eyþór Rafn Gissurarson. Populus þakkar pent fyrir sig.
Laugardaginn 28. júní 2014 setti listafólkið, sem kallaði sig RÓT 2014 og unnið hafði síðustu viku í gilinu að stórskemmtilegri listsköpun, á stofn fríríkið ABSÚRDÍU með tímabundnar höfuðstöðvar í Populus tremula.Á flötinni fyrir utan mátti sjá afrakstur vikunnar og síðan varð ABSÚRDÍA. Þar sem tíðindamaður Populus Panodil gat ekki staldrað lengi við sá hann ekki endanlegu myndina en þetta var hressilegt.