Í Populus tremula laugardaginn 2.nóvember sýndu nemendur í Myndlistaskóla Akureyrar afrakstur fjögurra vikna vinnu undir handleiðslu Hlyns Hallssonar. Sýninguna nefndu þau Fjórtán sinnum fjölfeldi ( sjá http://poptrem.blogspot.com/2013/10/nemendur-myndlistaskolans-akureyri.html ). Þetta var mjög skemmtileg sýning þar sem alls ekki var hangið á því fornkveðna að Less is More, þvert á móti var þetta More is More. Takk.
Á Drekamezzu sem DJ Delicious stóð fyrir í Populus tremula 19.10. 2013 var framinn gjörningur einn, sem ljóðmyndarinn Daníel Starrason náði að festa í digitölur.
Laugardaginn 12.október opnaði Hallgrímur Ingólfsson stórskemmtilega málverkasýningu í Populus tremula. Það var mikil umferð um Gilið í októberblíðunni og gleði á hverri vonarhýrri brá einsog segir í kvæðinu. Takk fyrir.