25.5.08

Guðný Kristmannsdóttir í Populus Tremula 24.-25.5.








Guðný Kristmannsdóttir setti upp fína sýningu í húsakynnum vorum um helgina. Væntanlega síðasta sýning starfsársins.

18.5.08

Aðalsteinn Svanur Söngvaskáld 17.5.008










Í Populus Tremula undir gamla Karólínuskiltinu söng Aðalsteinn Svanur sín ljúfustu lög í D, við eigin kvæði og föður síns, og í því tilefni gaf Populus Limited Publishing út bókina SÖNGVAR. Aðalsteinn var, einsog í allri hógværð venjan er hjá Populusmönnum, frábær og söng er kvæðin úr bókinni góðu voru á enda tvö uppklappslög við ljóð hins góðkunna og geðþekka Rúdólfs Rósenberg.

17.5.08

opið hús 17.5.008





Það var opið hús í Populus Tremula í dag. Reyndar var mikið um að vera í Gilinu opnanir uppi og niðri og hinum megin, en í Populus vorum við að selja bækur dreypa á hvítvíni og gera klárt fyrir okkar mann Aðalstein Svan, sem stígur á söngvaskáldsstokk í kvöld með tónleika og bók.

26.4.08

H&H í PopTrem 25.4.008. Sukkskinnuútgáfa











Eyfirðingarnir fræknu Helgi og Hljóðfæraleikararnir voru með húllumhæ í Populus Tremula föstudagskvöldið 25.4. 008. Tilefnið var útgáfa Populus Limited Publishing á SUKKSKINNU bók bræðranna Brynjólfssona gítarleikara H&H. Bókin sú hefur að geyma sögur frá 20 ára samstarfi Hljóðfæraleikaranna fræknu.
Það var upplestur, upphitunarband, H&H tónleikar og úr að ofan.
Vill einhver hafa það betra ?

19.4.08

Joris Rademaker með Sjónvit 19-20. apríl












Joris Rademaker opnaði stórgóða sýningu í Populus Tremula 19.4. Á sama tíma var annar hollvinur vor Jón Laxdal að opna einnig afar góða sýningu hjá Jónasi Viðar ( í mjólkurbúðinni ), þetta var góður dagur í vorsólinni í Gilinu.

10.4.08

Svarthvítar hetjur Blæasparinnar










Vegna vinnu við Populus Tremulaverkefni, sem segir frá síðar, hafa myndir af köppum blæasparinnar verið færðar í svarthvítt form. Hér eru þeir Aðalsteinn, Arnar, Atli, Bárður, Guðmundur, Gunnar, Hjálmar, Kristján og Sigurður Papapopulus, sem kallar saman sína menn.
Svona voru þeir.