31.10.10

Gamli Elgur í Populus Tremula

Gamli Elgur alias Helgi Þórsson opnaði að vanda stórskemmtilega málverkasýningu í Populus Tremula 30.10.2010. Sá Gamli málaði smalastúlkuna og aðrar stelpur í umhverfinu af alkunnum gáska. Við opnunina söng listamaðurinn nokkur splunkuný lög.

25.10.10

Sonja Lotta í Populus

Svissneska listakonan Sonja Lotta, sem hefur undanfarnar vikur dvalist í gestavinnustofu listagilsins, opnaði stórskemmtilega sýningu í Populus Tremula laugardaginn 23.10.2010. Sonja vann öll verkin meðan á dvöl hennar á Akureyri stóð.

12.9.10

YST í Populus Tremula

YST Ingunn Svavarsdóttir opnaði ansi fína sýningu föstudaginn 10.sepember. Sýningin bar yfirskiftina “ Út úr myrkri “.

1  2

3

4

5

6

7

8

5.9.10

Jared Betts í Populus Tremula.

Laugardaginn 4.9. 2010 opnaði Kanadamaðurinn Jared Betts stórskemmtilega málverkasýningu í sal Populus Tremula. Jared hefur dvalist í Listamiðstöðinni á Skagaströnd undanfarið sumar og málað þar þær myndir sem hann sýndi í Populus.    Því miður áttu sárafáir leið um gilið í haustblíðunni þennan laugardag ( kanski menningarþreyta eftir Akureyrarvöku helgina áður ), en það var synd því þessi sýning var hressilegur sumarauki. Takk Jared.

31.8.10

Arnar og Gunnar sýna Steypu

Fyrsta sýning vetrarins í Populus Tremula opnaði á Akureyrarvöku 28.8.2010. Það voru þeir félagar Arnar Tryggvason og Gunnar Kr. Jónasson, sem sýndu verk sem unnin eru úr steinsteypu. Þetta var að sönnu flott hjá strákunum.