Gamli Elgur alias Helgi Þórsson opnaði að vanda stórskemmtilega málverkasýningu í Populus Tremula 30.10.2010. Sá Gamli málaði smalastúlkuna og aðrar stelpur í umhverfinu af alkunnum gáska. Við opnunina söng listamaðurinn nokkur splunkuný lög.
31.10.10
25.10.10
Sonja Lotta í Populus
Svissneska listakonan Sonja Lotta, sem hefur undanfarnar vikur dvalist í gestavinnustofu listagilsins, opnaði stórskemmtilega sýningu í Populus Tremula laugardaginn 23.10.2010. Sonja vann öll verkin meðan á dvöl hennar á Akureyri stóð.
12.9.10
YST í Populus Tremula
YST Ingunn Svavarsdóttir opnaði ansi fína sýningu föstudaginn 10.sepember. Sýningin bar yfirskiftina “ Út úr myrkri “.
5.9.10
Jared Betts í Populus Tremula.
Laugardaginn 4.9. 2010 opnaði Kanadamaðurinn Jared Betts stórskemmtilega málverkasýningu í sal Populus Tremula. Jared hefur dvalist í Listamiðstöðinni á Skagaströnd undanfarið sumar og málað þar þær myndir sem hann sýndi í Populus. Því miður áttu sárafáir leið um gilið í haustblíðunni þennan laugardag ( kanski menningarþreyta eftir Akureyrarvöku helgina áður ), en það var synd því þessi sýning var hressilegur sumarauki. Takk Jared.