22.3.10

Ragnar Hólm í Populus Tremula

Laugardaginn 20.3. 2010, opnaði Ragnar Hólm sallafína sýningu á vatnslitamyndum í Populus Tremula. Þetta var fyrsta vatnslitamyndasýning listamannsins og tókst vel til

8.3.10

Afmæli

Aðalsteinn Svanur Sigfússon er rétt um það bil að fylla fimm tugi jarðvistar. Upp á það hélt hann með tónleikum sínum á föstudagskvöld og síðan mikilli veislu laugardaginn 6.3. 2010. Fjöldi fólks tróð upp og mikið var lífsblómið vökvað. Stympingar voru engar né pústrar. Ekki sást sút á nokkrum manni. Semsagt gaman.

Til hamingju Aðalsteinn!

 

7.3.10

Aðalsteinn Svanur söngvaskáld

Hinn geðþekki Aðalsteinn Svanur hélt tónleika í Populus Tremula föstudagskveldið  5.3. 2010  og naut liðsinnis stúptengdasonar síns Hjálmars Guðmundssonar. Tónleikarnir voru haldnir vegna yfirvofandi fimmtugsafmælis söngvaskáldsins, sem fór á kostum yfir sína góðu slagara bæði eldri og nýrri.

22.2.10

Tónleikur

Kristján Pétur Sigurðsson hélt tónleika í Populus Tremula laugardagskveldið 20.2. Kristján Pétur kom nakinn fram, það er án aðstoðarmanna við hljóðfæraslátt og án þess að magna upp söng eða hljóðfæri, Þettu voru huggulegir kertaljósatónleikar meðan snjóaði útifyrir.