












Helgina 3.-4. apríl 2009 var stórmerk ljóðahátíð í Populus Tremula, skipuleggjendur eru ákaflega hæverskir og gáfu fyrirbærinu nafnið " Litla Ljóðahátíðin ".
Fyrra kvöldið lásu kanónurnar, Jón Laxdal, Þórarinn Eldjárn og Ingunn Snædal upp úr verkum sínum og Eiríkur Örn Norðdahl sendi vídeóljóðagjörning.
Aðsókn var góð og gerði fólk góðan róm að skáldskapnum og flutningnum.






































