31.5.09

Rokktónleikar 30.maí


















Akureyrarhljómsveitirnar Völva og Buxnaskjónar héldu tónleika í Populus Tremula 30.5. 009, ásamt Tim Holehouse frá Bretlandi og hinni alíslensku DeathMetal Supersquad. Þetta voru skemmtilegir tónleikar og gestirnir, sem hefðu getað verið fleiri, áttu svikalaust góða kvöldstund.

24.5.09

Ásta Bára sýnir í Populus Tremula










Laugardaginn 23.maí 009 opnaði Ásta Bára Pétursdóttir sýningu á nýjum olíumálverkum í Populus Tremula.

18.5.09

Í réttri hæð í Populus Tremula





























Laugardaginn 16.maí 009 opnuðu Aðalsteinn Svanur, Arnar Tryggvason, Gunnar Kr., Kristán Pétur, Jón Laxdal og Þórarinn Blöndal samsýninguna " Í réttri hæð ". Myndverkin voru hengd upp í aðgengilegri hæð fyrir þau sem eru kanski bara ennþá smá, eða hafa af lífinu lent í stól á hjólum. Það var fjör við opnun í vorblíðunni og fjölmargir tróðu upp, t.d. röppuðu allir sýnendur Goðmund á Glæsivöllum.

11.5.09

Kjartan Sigtryggsson teiknar
















Laugardaginn 9.5.009 opnaði Kjartan Sigtryggsson stórgóða sýningu á teikningum ( bæði nokkuð hefðbundnum og tölvuunnum ) í sal Populus Tremula.

6.5.09

Húllumhæ til heiðurs starfsfólki Ásprent Stíl

















Laugardagskvöldið 2. maí 009 hélt Populus tremula lokað skemmtikvöld fyrir starfsfólk Ásprents Stíls.
Með þessu vildu félagsmenn í Populus þakka Ásprenti Stíl með sínum hætti fyrir ómetanlegan stuðning fyrirtækisins við starfsemi Populus tremula frá upphafi, haustið 2004.
Það var hopp það var hó og það var hí. Húsbandið spilaði, trúbadúrinn Aðalsteinn Svanur var í essinu sínu og Konni og Ólöf Valsdóttir sungu meðal annars texta eftir afmælisbarnið, sjálfan PapaPopulus. En Populusliðar færðu Papa Sigurði gjöf, sem mölur og ryð fær ekki grandað og afmælissöngurinn var kyrjaður undir knárri stjórn Hjálmars.

3.5.09

Skakkamanage í Populus Tremula 1.maí

















Fyrstamaíhátíðahöldin í Populus Tremula anno 2009 voru stórskemmtilegir tónleikar Skakkamanage.
Konni okkar maður hitaði upp sem Sickbird og Máni sonur hans var honum innanhandar. Prins Póló og Létt á Bárunni komu á undan Skakkamanage, en það er nú ekki fjarskyldur mannskapur þeim í Skakka.
Semsagt stórgott og eftir gigg djömmuðu okkar menn Arnar og Gunni með.